21 smit greindist um helgina

Alls greindist 21 COVID-19 smit hér á landi um helgina, að sögn Más Kristjánssonar, yfirlæknis smitsjúkdómadeildar Landspítalans. Af þeim greindust fimm til sex utan sóttkvíar. Þetta kemur fram á vef mbl.is.

Inni í þessum smittölum eru skipverjarnir á súrálsskipinu sem kom til Reyðarfjarðar um helgina, en tíu skipverjar reyndust smitaðir af veirunni. Þá greindust þrjú til fjögur smit á landamærunum.

Eins og Hringbraut greindi frá í morgun ræddi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir tölur helgarinnar í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Í máli Þórólfs kom fram að nokkur smit hefðu greinst um helgina og ekki hafi allir verið í sóttkví. Nú liggur fyrir að smitin voru rúmlega tuttugu.