Alls greindust 200 einstaklingar með COVID-19 í gær sem er það langmesta á einum degi í faraldrinum til þessa. Átján einstaklingar eru nú á sjúkrahúsi og fjórir á gjörgæslu.
Nú eru 1.505. í einangrun vegna Covid-19 og fjölgar nokkuð frá því í fyrradag er þeir voru 1.353. Í sóttkví eru 2.365 en voru 2.130 í gær. Þá eru 206 í skimunarsóttkví.
Nýgengi á smiti innanlands, það er fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 445,1, en var 418,9 í gær. Nýgengi smita á landamærum er nú 25,9 en var 23,7 í gær.