Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum fyrr í dag að framlengja þær aðgerðir sem nú eru í gildi innanlands til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar um tvær vikur en núverandi reglugerð gildir út 13. ágúst næstkomandi.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra greindi frá því á blaðamannafundi í dag að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi lagt það til að aðgerðirnar yrðu framlengdar þar sem enn ætti eftir að koma í ljós hversu margir myndu veikjast alvarlega.
„Það kemur fram í minnisblaðinu að meira en helmingur einstaklinga 70 ára og eldri sem hafa greinst í þessari bylgju sé á fyrstu viku veikinda og því sé ekki komin reynsla á því hvernig gangur veikinda verður hjá þessum hópi. Í því ljósi telur sóttvarnalæknir ekki tímabært að aflétta aðgerðum innanlands,“ sagði Svandís.
Þær takmarkanir sem nú eru í gildi voru settar á þann 23. júlí síðastliðinn en fyrir það höfðu engar takmarkanir verið í gildi. Ákveðið var að grípa til aðgerða eftir að fjöldi smita fór að greinast og hrinti af stað fjórðu bylgju faraldursins.
„Frá því að þessi reglugerð tók gildi þá hefur fjöldi greindra smita verið með því mesta frá upphafi faraldursins og hlutfall jákvæðra sýna hefur verið tiltiölulega mikið. Sóttvarnalæknir bendir á að þessi fjöldi smita hafi ekki allt að segja um áhrif faraldursins á Landspítala,“ sagði Svandís og bætti við að nú sé unnið að greiningu hversu góða vernd bólusetningin veitir gegn alvarlegum veikindum.
Á fundinum fór Svandís einnig yfir það hvernig skólarnir munu starfa þegar þeir hefjast á ný í lok mánaðar og verða þá sömu takmarkanir þar og annars staðar í samfélaginu, með þeirri undantekningu að slakað verður á grímuskyldu.
Þannig munu börn fædd fyrir 2006 geta tekið af sér grímuna þegar þau setjast niður í skólastofu. Börn fædd eftir 2006 eru áfram undanskilin grímunotkun.