Sannkallaðir risastrókar stóðu upp úr virka gígnum í Geldindagölum skömmu eftir miðnætti í kvöld. Á slaginu miðnætti virtist allir vindur úr gosinu í nokkrar mínútur, en kl. 00:03 hófst hinsvegar öflug en skammvinn strókavirkni sem skilaði sennilega stærstu strókum sem sést hafa í þessu eldgosi, að því er fram kemur á Facebook síðu Eldfjalla-og náttúruvárhóps Suðurlands.
Þar kemur fram að mjög erfitt sé að meta hæðina. Strókarnir urðu hinsvegar margfalt hærri en gígbarmarnir. Gígurinn er áætlaður um 45-50 metra hár og má því ætla að strókarnir hafi farið 200-300 metra upp frá hrauntjörninni sem mallar inn í miðjum gígnum.
Fréttablaðið.ishefur eftir Salóme Jórunni Bernharðsdóttur, náttúruvásérfræðingi hjá Veðurstofunni, að um sé að ræða breytta hegðun. Púlsvirknin, það er að segja að virknin dettur niður þar til risastrókarnir koma upp, hafi gerst ítrekað í nótt.
Hún segir erfitt að segja til um það á þessum tímapunkti hvað sé að gerast. Þrýstingsbreyting sé hinsvegar að eiga sér stað og mikið sjónarspil. Hún segir þá jafnframt sjást til Reykjavíkur.