18 gestir inni, enginn með grímu og tveggja metra regla ekki virt

Rekstraraðili í Kópavogi verður kærður fyrir brot á sóttvarnarlögum eftir að lögregla lokaði staðnum á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þegar lögregla kom á staðinn voru 18 gestir inni, enginn með grímu og þá var tveggja metra fjarlægðarreglan ekki virt.

Að sögn lögreglu hafði staðurinn auglýst opið fyrir viðskiptavini meðan landsleikur Íslands og Ungverjalands fór fram í gærkvöldi. Leikurinn hófst klukkan 19:45 og lauk honum ekki fyrr en rúmlega 21:30. Lögregla vísaði gestum út og var staðnum lokað í kjölfarið.

Rétt fyrir klukkan 23 var ökumaður bifreiðar handtekinn í Mosfellsbæ en sá er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, líkamsárás og fleira til.

Að sögn lögreglu mun maðurinn hafa ekið mjög hægt og í veg fyrir bifreið sem reyndi frammúrakstur. Síðan stöðvaði maðurinn bifreiðina og bakkaði á næstu bifreið fyrir aftan. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknra málsins.