Ragga nagli segir fjötra matarkvíðans fylla okkur af samviskubiti og skömm

Ragga Nagli sálfræðingur og einkaþjálfari sem þekkt hefur verið fyrir að deila heilbrigðum lífsstíl sínum og jákvæðum hugsunum segir fólk haldið matarkvíða vera fullt af samviskubiti og skömm.

Í nýjasta pistli sínum sem Ragga gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til þess að fjalla um ræðir hún um matarvenjur fólks og hversu mikilvægt það er að losa sig undan matarkvíða.

„Matur er bara matur, en ekki flokkaður í „hollur eða óhollur”, „fitandi” eða „nærandi.” Enginn matur er í kategoríu með Manson fjölskyldunni.“ Segir Ragga.

„Í matarkvíða ertu fjötrum vafinn um hálsinn með stífu regluverki, boðum og bönnum. Sósaður í samviskubiti og skömm. Laus við matarkvíða ertu valhoppandi með hvolpum og einhyrningum í sveigjanleika og frelsi. Stútfullur af sjálfstrausti og valdeflingu.“

Ragga segir stíft mataræði svipta fólki frelsinu og matinn ná mátti yfir þeim.

„Þú þarft að klára nammipokann núna því þú ætlar að reyra sultarólina aftur á morgun. Mataræði á ekki að vera þyrnikóróna og gapastokkur. Mataræði á að auðga lífsgæðin og stuðla að langtímaheldni út lífið. Það eru engin lífsgæði í að velkjast hverja vökustund í matarkvíða veislum, saumaklúbbum, föstudagskaffi og samviskubit yfir súrdeigsbrauðsneiðinni í hádeginu.“

Segir Ragga sveigjanlegt mataræði gefa fólki valfrelsi og losi það við sektarkennd.

„Og þegar sektarkennd er ekki lengur í partýinu færðu betri dómgreind til að hugsa sem best um heilsuna þína. Þú gleymir ísnum sem þú átt í frystinum og manst bara eftir honum næst þegar þú tekur út frosnu kjúklingabringurnar. Þú hlakkar til að hreyfa þig því þú hefur fundið leið til sem gleður líkamann og nærir sálina Grænmeti er gúllað með gleði í hvaða útgáfu sem það kemur. Af því þér líður vel í skrokknum á eftir.“

Með því að losna við matarkvíðan segir Ragga að fólk velji betri valkosti vegna þess að því langi til þess að hugsa sem best um sjálft sig.

„Ekki til að vera góður og hlýðinn meðlimur í púritönsku samfélagi. Þú velur „stundum“ smjörvað og sykrað sætindi. Sveittan börger og fröllur með mæjóið út á kinn. Pizzu stútfulla af hvítu hveiti og unnum kjötvörum á toppnum. Stundum er bara einn biti af köku akkúrat málið til að losna við sykurlöngun. Stundum er það öll sneiðin sem líkaminn og hausinn vill. En eftirá gerist ekkert í sálinni. Núll. Nada. Frostmark.“

Þá segir Ragga að þegar fólk losni úr fjötrum matarkvíða breytist hugarorka þess og hver mínúta dagsins fer ekki lengur í það að hugsa um mat.