Viktor segir umræðuna lítið annað en bull: Framsókn hafi líka verið „hafnað“ af kjósendum

Stjórnmálafræðingurinn Viktor Valgarðsson fjallar um umræðuna í kringum úrslit sveitastjórnarkosninganna í Reykjavík í þræði á Twitter. Hann segir að í raun og veru sé það ekkert annað en bull og vitleysa að tala um hverjir unnu kosningarnar, eða hvaða skilaboð kjósendur séu að senda.

„Eins og venjulega eftir kosningar er mikið talað um hver "unnu" kosningarnar, hvaða skilaboð kjósendur sendu og hvaða meirihluta megi mynda - og eins og venjulega er 99% af því spin og/eða bull...“

Að mati Viktors hafa flokkar hreinlega það umboð sem atkvæði þeirra veittu þeim og ekkert annað. „Sá flokkur sem bætti mestu við sig frá síðustu kosningum hefur ekkert meira umboð en aðrir út á það eitt og sér.“ Skrifar og hann og útskýrir frekar:

„XD vann kosningarnar í Reykjavík, í þeim hefðbundna skilningi að þau fengu fleiri atkvæði en aðrir flokkar. XS var í öðru sæti og XB í því þriðja. Spútnikliðið sem kemur á óvart með góðum árangri á móti og endar í þriðja sæti á hrós skilið, en það vann samt ekki mótið.“

Þá bendir Viktor á að enginn flokkur hafi fengið hreinan meirihluta og því geti enginn þeirra gert kröfu um veru í meirihluta á þeim forsendum einum.

„En enginn þeirra fékk meirihluta og þeir geta ekki gert kröfu um að aðrir flokkar vinni með þeim á þessum forsendum einum. Ef flokkar geta og vilja mynda meirihluta sem þau telja í samræmi við vilja *sinna kjósenda* þá er ekkert andlýðræðislegt eða óeðlilegt við það.“

Að lokum segir Viktor að vissulega megi Einar lesa það sem honum sýnist um úrslit kosninganna, en bendir á að kjósendur hafi Framsóknarflokknum alveg jafn mikið og meirihlutanum.

„Einar má auðvitað lesa það sem honum sýnist í sín atkvæði, en úrslit kosninganna segja í raun ekkert um það hvaða meirihluta eigi að mynda; fráfarandi meirihluta og minnihluta var "hafnað" álíka mikið, af 18% kjósenda sem kusu flokk sem sagðist geta unnið í báðar áttir.“