Viðreisn; vonbrigði eða viðunandi?

Viðreisn mælist með frá rúmlega átta prósenta fylgi og allt að rúmlega þrettán prósenta fylgi. Eru það vonbrigði, eða er það viðunandi?

Fylgi flokksins skiptist nokkuð jafnt milli aldurshópa og milli kjördæma. Hvergi nær flokkurinn sér mjög vel á strik og hvergi virðist hann ekki ná eyrum fólks. Eina undantekningin er skoðanakönnun 365 um afstöðu fólks í Norðvesturkjördæmi, þar sem fylgið sýndist mjög lagt. Aðrar kannanir benda til annars.

Eftir að framboðlistar Viðreisnar lágu fyrir og af orðræðunni er nokkuð víst að aðstandendur flokksins og frambjóðendur hans væntu þess að fylgið myndi aukast. Í sumum könnunum hefur lítið sem ekkert bæst frá þeim tíma sem Benedikt Jóhannesson, formaður flokksins, var hans eina andlit, hans eini maður.

Trúlegast er að flokksfólk bíði spennt þess sem verður í næstu könnunum. Hér að neðan er tafla sem sýnir hvert fylgi Viðreisnar er samkvæmt nýjustu mælingum þeirra sem gera skoðanakannanir.

 

Fylgi Viðreisnar
3658,40%
Gallup13,40%
MMR12,30%
MBL11,70%
Meðaltal11,50%

Ef mið er tekið af eftirvæntingum, hvaða fólk gegg til liðs við Viðreisn má gera ráð fyrir að enn sem komið er, hið minnsta, hafi ekki tekist til einsog vonir stóðu til. Rúmlega ellefu prósenta fylgi er væntanlega minna en vonir stóðu til. Gangi það eftir verður staða Viðreisnar eftir kosningar annað hvort viðunandi eða vonbrigði. Ekki góð.