Viðreisn vill ekki vera gamaldags

Meðan Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar og hugsanlegt ráðherraefni flokksins, segir sig og sitt fólk ekki vilja neinar gamaldags skattahækkanir, fari flokkurinn í ríkisstjórn, opnar Pawel Bartoszek, þingmaðurinn sem sagði skatta vera ofbeldi, á breytingar á þeirri afstsöðu sinni.

Mér er fullkomlega ómögulegt að muna hvort Þorsteinn kom fram í fréttum Ríkissjónvarspsins eða í fréttum 365, með þá skoðun sína að Viðreisn sættist ekki á gamaldags skattahækkanir.

Það er hins vegar ljóst með öllu að það var í laugardagsþætti Þjóðbrautar sem Pawel sagði að þegar unnið sé að stjórnarmyndun væri það aldrei svo að allir fengju allt sitt. Skattamálin eru hluti þess sem skiptir máli á fundum um stjórnarmyndun. Á þeim þarf að finna sáttaleið.

Fljótt mun skýrast hvort samningaleiðin verði ofan á í Viðreisn, eða óttinn við að verða púkó.