Viðreisn heggur í sjálfstæðisflokk

Nýjasta skoðanakönnun sýnir að flótti er kominn í stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins. Þeir virðast hafa fundið flóttaleið; Viðreisn.

Eftir birtingu Panamaskjalanna jókst fylgi Sjálfstæðisflokksins lítið eitt, en eftir formlega stofnun Viðreisnar, er ekki annað að sjá en skollinn sé á flótti frá Sjálfstæðisflokki yfir til Viðreisnar. Viðreisnar sem eigi að síður hefur lítið gert annað en kynna enn og aftur formann flokksins, Benedikt Jóhannesson. Gangi sterkir frambjóðendur til liðs við Viðreisn er vel hugsanlegt að straumhvörf verði á hægri vængnum.

Í skoðanakönnuninni sem Félagsvísindadeild Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið kemur fram að fylgi Sjálfstæðisflokksins er nú aðeins 22,7 prósent, sem er prósentustigi minna fylgi en flokkurinn fékk í afhroðinu í kosningunum 2009.

Fylgistap Sjálfstæðisflokksins sem og Davíðs Oddssonar forsetaframbjóðanda haldast í hendur og hlýtur að valda fólki þar áhyggjum og kalla á viðbrögð þess vegna.

Með nýrri forystu eykur Samfylkingin fylgi sitt lítið eitt, eflaust minna en margur vonaði.

Hvað um það. Framundan eru spennandi og eflaust mjög sögulegar þingkosningar.

Sigurjón M. Egilsson.