Íslenska landsliðið sýndi hversu gott það er þegar það fagnaði með ótrúlegum stuðningsmönnum sínum eftir eina tap liðsins í Frakklandi. Stuðningsmenn liðsins, það er öll þjóðin, sýndi einnig að hún kann að tapa kappleik. Ekkert okkar er ósátt. Öll fögnum við.
Við fögnum fádæma árangri, fádæma framgöngu og fádæma framkomu. Liðs og þjóðar. Við erum stolt.
Þrátt fyrir að liðið hafi leikið sinn versta hálfleik í gærkvöld er enginn Íslendingur stúrinn. Við klöppum hvert fyrir öðru. Og fyrir liðinu okkar.
Trúlegast mun árangur liðsins kasta skæru ljósi á svo margt annað. Kvennalandsliðið mun tryggja sér þátttöku á úrslitamóti Evrópukeppninnar. Þær hafa gert það áður en nú verður katljósið skærara. Karlalandsiliðið hefur meðal annars stuðlað að því. Og að auki verða fjölmiðlar að leika þann leik. Tryggja aðgang að leikjum kvennaliðsins og ekkert vesen. Ekki sýna leiki þeirra á hliðarrásum.
Fátt er skemmtilegra en samstaða þjóðarinnar um afrek liðanna okkar.
Áfram Ísland.
Sigurjón M. Egilsson.