Henný Hinz verður gestur í Þjóðbraut í kvöld. Þar verður rætt um hversu miklu minna er varið til heilbrigðiskerfisins hér en á hinum Norðurlöndunum.
Við lestur úttektar hagdeildar ASÍ sést að margfalt fleiri Íslendingar en aðrir norðurlandabúar, neita sér um um læknisþjónustu sökum fátæktar.
Þá kemur einnig skýrt fram að hlutur veikra í kostnaði við heilbrigðiskerfið hækkar sífellt hér á landi. Það tók að breytast af ráði, í tíð fyrstu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar, árið 1991 og hefur aukist ífellt síðan.
Nánar verður fjallað um þetta í þætti kvöldsins og annað kvöld mætir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra til að fjalla um þetta sama mál.