Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum umræða um hvort Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, muni bjóða sig fram á móti sitjandi formanni Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni.
Á vefsíðu Miðjunnar er fjallað um þennan formannsstól Sjálfstæðisflokksins og þar er því haldið fram að í raun sé Guðlaugur á síðasta séns.
„Guðlaugur Þór Þórðarson hefur engu að tapa þó hann takist á við Bjarna Ben um formennskuna. Bjarni er eflaust búinn að fá sinn tíma og rúmlega það.“ segir á Miðjunni.
Þá er kafað í samband Guðlaugs og Bjarna, og gefið til kynna að samband þeirra sé ekki gott. Guðlaugur sé ekki í miklu áliti hjá formanninum.
„Gulli á ekki upp á pallborðið hjá Bjarna. Að óbreyttu er inneign hans lítil, sem engin. Fyrir Gulla er þetta núna eða aldrei. Reikna má fastlega með að ef Bjarni verður endurkjörinn hætti hann áður en kemur að næsta landsfundi og þá mun Þórdís K.R. Gylfadóttir erfa formannsstólinn. Þar með munu allir væntingar Gulla um að komast í formannsstólinn að engu orðnar.“ Segir í pistlinum sem endar á þessum orðum:
„Því er það nú eða aldrei.“