Tíu ótrúlegar snjallar leiðir til að láta matvælin endast lengur

Það getur verið afar svekkjandi að horfa á eftir matvælum fyrir þúsundir króna lenda í ruslinu. Með réttri meðhöndlum má láta matvælin endast mun lengur. Þessi ráð eru stórsniðug og hjálpa okkur að draga úr kostnaði við matarinnkaupin.

\"\"

Geymið sveppina í pappírspoka: Plast lokar inni raka sem veldur því að sveppirnir mygla.

\"\"

 Geymið engiferrótina í frystinum: Þá er mun auðveldara að rífa hana og hún geymist mun lengur.

\"\"

 Lokið fyrir plastpokana: Skerið toppinn af plastflösku þræðið pokann í gegn og skrúfið tappann á. Gætið þess að matvaran sé þurr svo raki lokist ekki inni í pokanum.

\"\"

 Vefjið sellerí, spergilkál og kál inn í álpappír: Gerið þetta um leið og komið er úr búðinni og það helst ferskt mun lengur.

\"\"

 Leggið eldhúspappír ofan á salatið: Pappírinn dregur í sig raka og salatið geymist mun lengur.

\"\"

Frystið kryddjurtirnar í ólífuolíu: Hellið ólívuolíu í klakaform og setjið kryddjurtirnar útí. Olían mun draga í sig bragð af jurtunum. Notið eftir þörfum til steikingar.

\"\"

Geymið kartöflur með eplum: Eplin koma í veg fyrir að kartöflurnar spíri.

\"\"

Hendið strax ávöxtum sem eru byrjaðir að rotna: Fylgist vel með hvort ávextirnir séu byrjaðir að skemmast. Mygla dreifir sér hratt og getur ollið því að matvæli sem komast í snertingu við ónýta ávöxtinn skemmist hraðar.

\"\"

Vefjið plastfilmu um toppinn á bananaklasanum: Þeir geymast u.þ.b. viku lengur.

\"\"

Frystið eggin ef þau eru að renna út: Já, það má frysta egg. Takið egg og hrærið saman með gaffli, setjið örlítið salt eða sykur u.þ.b. ½ tsk. fyrir hver 6 egg. Það má frysta þau t.d. 3 saman í poka, sem er algengt magn í bakstri eða í klakaformi. Einn klaki er svipað magn og eitt lítið egg. Einnig má frysta eggjahvítur og eggjarauður í sitt hvoru lagi. Ef eggjarauður eru frystar er látið örlítið salt eða ½ t.s.k. fyrir 12-14 eggjarauður. Það þarf ekki salt í eggjahvíturnar, aðeins að skella þeim í poka, loka fyrir og inn í frysti.

\"\"