Í frétt Ríkissjónvarpsins í gærkvöld, um endurkomu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, og ekki síst vilja hans til að falla frá kosningum í haust, var sagt að Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hafi sagt einhug innan þingflokksins um kosningar í haust. Því til sönnunar var sýnt myndbrot af stigafundinum eftirminnilega og spilað þar sem Sigurður Ingi sagði; algjörlega. Þar var hann, eftir því sem RÚV sagði, að staðfesta einhug innan þingflokks Framsóknar við haustkosningar.
Þetta stangast fullkomlega á við það sem tveir af valdamestu þingmönnum Framsóknarflokksins hafa sagt á Þjóðbraut Hringbrautar.
Gunnar Bragi Sveinsson atvinnuvegaráðherra sagði í sunnudagsþætti Þjóðbrautar á Hringbraut að hann hafi alltaf verið, og sé enn, mótfallinn að kjósa til Alþingis í haust. Það hefði átt að gera að kjörtímabilinu liðnu, það er næsta vor.
Gunnar Bragi sagðist aðspurður hafa sagt það á þingflokksfundi Framsóknar þegar samþykkt var að halda áfram stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk, eftir afsögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins.
„Ég var alfarið á móti haustkosningunum. Hver er eiginlega stjórnskipun landsins. Ég lagði til að annahvort sætum við til loka kjörtímabilsins eða boðað yrði til kosninga innan sex vikna,“ sagði Vigdís Hauksdóttir á Þjóðbraut þegar hún var spurð um hennar afstöðu og lét lýsti afstöðu sinni á þingflokksfundinum, sem svo Sigurður Ingi lýsti sem fundi einhugar og samstöðu.
Ef gengið er út frá því sem vísu að RÚV hafi unnið frétt gærkvöldsins af fullum sóma er ljóst er að forsætisráðherra talaði gegn betri vitund þegar hann sagði einhug innan þingflokksins um haustkosningar. Þegar Gunnar Bragi og Vigdís tala bæði á annan veg er ekki einhugur í hópnum.
Því kaus Sigurður Ingi að segja ósátt þetta örlagaríka kvöld?