Óskar Magnússon, fyrrverandi útgefandi Morgunblaðsins og sá sem kom í veg fyrir dauða þess með aðkomu margra auðmanna og banka, var í viðtali í Mannamálum Sigmundar Ernis Rúnarsson. Þeir töluðu meðal annars um Morgunblaðið.
Óskar upplýsti að auðmennirnir, sem að mestu koma úr stórum sjávarútvegsfyrirtækjum, hafi lagt á ritstjóranna sem þeir réðu að blaðinu, Davíð Oddsson og Harald Johannesen, að blaðið ætti að berjast fyrir þrennu. Berjast gegn Icesave og berjast gegn aðild að Evrópusambandinu og standa vörð um sjávarútveginn. Óskar fannst þetta allt hafa gengið vel eftir. Og þakkaði Morgunblaðinu.
Óskar sagði lesendur blaðsins verða að gera mun á ritstjórnargreinum, sem ávallt eru nafnlausar, og fréttaskrifum blaðsins. Það má vel vera, en þá verða ritstjórarnir að gera það líka. Skoðanir þeirra og hagsmunir eigendanna ná alltof of oft í fréttir blaðsins, ráða fréttamati og það verða hinir ríku eigendur og ritstjórarnir að gera sér grein fyrir.
Þrátt fyrir að Morgunblaðinu takist oft vel upp og geri margt með ágætum losnar það ekki undan meginhlutverki sínu. Það er að ganga erinda eigendanna sinna, að sinna pólitískum skoðunum þeirra. Rétt eins og endurreisnarmaður Morgunblaðsins, Óskar Magnússon, skýrði svo vel í hreint ágætu viðtali í Mannamálum.