Þrír flokkar í fimm flokka stjórn

Fátt bendir til annars en að Katrín Jakobsdóttir fái umboð frá forseta Íslands til að mynda ríkisstjórn. Og margt bendir til að henni takist það. Það yrði þá sérstök stjórn fimm flokka, þar sem aðeins þrír þeirra munu eiga beina aðild að ríkisstjórninni, það er Vinstri græn, Björt framtíð og Viðreisn, en Píratar og Samfylkingin verði stuðningsflokkar þeirrar ríkisstjórnar.

Sem stendur er þetta sú niðurstaða sem er líklegust. Heimildir herma að innan annarra flokka en VG þyki Steingrímur J. Sigfússon ekki spennandi kostur sem ráðherra komi til þeirrar ríkisstjórnar. Hann hefur verið nefndur sem forseti Alþingis, gangi þetta eftir. Sem er trúlegt, næga þingreynsluna hefur hann. Aðrir munu lítt spenntir fyrir að hann setjist í ráðherrastól.

Flokkarnir þrír, það er VG, Viðreisn og Björt framtíð hafa samtals 21 þingmann sem dugar hvergi. Píratar eru með tíu þingmenn og Samfylkingin þrjá. Samtals eru það 34 þingmenn. Kannski er réttara að segja að stjórnarandstæðingarnir verða 29. 21 frá Sjálfstæðisflokki og átta frá Framsóknarflokki.

Allt síðasta kjörtímabil sögðu fulltrúar stjórnarandstöðunnar að félli ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í kosningum væri eðlilegt að hinir flokkarnir tæku við landsstjórninni. Sú staða er nú uppi. Þó með þeim breytingum að Viðreisn hefur bæst við, en hún átti ekki þingmann á síðasta kjörtímabili.

Orðrómur, innan raða þeirra sem nú tala saman um myndun ríkisstjórnar undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur, er semsagt á þann veg að minnst er spennan fyrir að Steingrímur J. verði ráðherra í þeirri ríkisstjórn. Til í allt án Steingríms J., einsog sagt var í hálfkæringi.