Þekkir söguna, verk forvera sinna

Guðni Th. Jóhannesson er forseti Íslands. Rétt er að óska honum og hans fólki til hamingju. Eins er rétt að óska þjóðinni allri til hamingju. Guðni Th. Jóhannesson verður vafalaust góður forseti. Með embættistöku Guðna eru tímamót í sögu þjóðarinnar.

Ræða Guðna við innsetninguna var góð. Boðar breyttan tíma. Kynslóðaskipti. Ekki síst þessi kafli:

„Hér er gömul saga sögð á nýjan hátt. Þannig verður liðin tíð litrík og fersk. Á sama hátt virðumst við Íslendingar ekki jafn einsleitir og áður fyrr. Við játum ólík trúarbrögð, stöndum sum utan trúfélaga, við erum ólík á hörund, við getum heitið erlendum eiginnöfnum, þúsundir íbúa þessa lands eiga sér erlendan uppruna og tala litla eða enga íslensku en láta samt gott af sér leiða hér. Við lifum tíma fjölbreytni og megi þeir halda áfram þannig að hver og einn geti rækt sín sérkenni, látið eigin drauma rætast en fundið skjól og styrk í samfélagi manna og réttarríki hér á landi.“

Þjóðin kaus nýjan forseta í vor og mun kjósa nýtt þing í haust. Margt bendir til að miklar breytingar verði eftir þær kosningar. Átök eru framundan og eflaust verða þau hörð.

Að þeim loknum kemur til kasta Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands. Þá er gott til þess að hugsa hversu vel hann þekkir hann söguna, verk forvera sinna. Ekki er ólíklegt að reyna muni á forseta Íslands, gangi skoðanakannanir eftir.

Guðni nýtur traust til þeirra verka sem hans bíða.