Þegar guðni th. féll á prófi

Ástæða er til að óska Guðna Th. Jóhannessyni og hans fjölskyldu til hamingju. Eins er rétt að óska þjóðinni til hamingju með hinn nýja forseta. Guðni er vandaður maður og hann á alla möguleika á að verða þjóðinni og sér til sóma í embætti forseta Íslands.

Nokkru fyrir framboð Guðna til emættis forseta varð ég þeirra gæfu aðnjótandi að taka við hann löng viðtöl um embætti forseta Íslands. Við töluðum um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, um tilurð embættisins, um Svein Björsson, Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eldjárn, Vigdísi Finnbogadóttur, Ólaf Ragnar Grímsson, um stjórnarkreppur og svo margt annað. Guðni leiftraði af frásagnargleði, þekkingu, virðingu fyrir embætti forseta og í fáum orðum sagt, þá var hann stórkostlegur. 365 á viðtölin sem voru aldrei sýnd.  Vegna þess að fyrst fór ég frá 365 til Hringbrautar og síðar fór Guðni í framboð og verður síðar í dag settur í embætti forseta Íslands, embætti sem hann þekkir svo vel og ber svo mika virðingu fyrir. Það er við hæfi.

Vonandi losna ráðendur 365 úr fýlunni og setja viðtölin við Guðna á dagskrá.

Ég hef hér reynt að segja frá Guðna einsog ég kynntist honum við gerð þáttanna sem aldrei voru sýndir, Fimm forsetar áttu þeir að kallast. Reyndar var ég málkunnugur honum áður, sem réði því, að ég leitaði til hans við gerð þáttanna.

Þá kemur að hinni neikvæðu fyrirsögn. Guðni féll á prófi og það mikilvægu. Guðni sem hefur áreynslulausa og fágaða framkomu, glæsta frásögn, hlýju og ber virðingu fyrir sögu embættis forseta Íslands, valdi sér ekki rétta ráðgjafa í kosningabaráttunni. Hann valdi sér fyrirtæki sem er einkum þekkt fyrir ráðgjöf fyrir þá sem eru í vondum málum. Það átti ekki við um Guðna Th. Jóhannesson. Betra hefði verið að gera meira úr mörgum kostum hans en gert var. Af þeim er nóg.

Mikil og góð viðbrögð voru við framboði Guðna. Fylgið minnkaði stöðugt fram að kosningum, þó sigur ynnist, er víst að Guðni átti meira inni, meiri möguleika.

Fyrsta verk ráðgjafanna var að færa Guðna fjær fjölmiðlum, fjær honum sjálfum. Guðni þáði hin vondu ráð. Það voru hans mistök.

Nú reynir á. Guðni verður að vera ákveðnari hér eftir. Hann má ekki gera slík mistök aftur. Það var vegna kosta Guðna, kosta sem hann sýndi svo vel áður en hann fór í framboð, að hann var kjörinn og þrátt fyrir misheppnaða kosningabaráttu.

Guðni er ráðgjöfum sínum langtum fremri. Hann þarf að hyggja vel að hvert hann sækir sér ráð.