Leik er lokið. Ný keppni er framundan og það sem liðið hefur áorkað síðustu vikur setur allt í nýtt ljós. Svo frábær er árangur liðsins. Það er ekkert við því að segja eða gera að varnir okkar hafi brugðist í fáar mínútur. Niðurstaðan er langt umfram allar væntingar.
Frammistaða liðsins og alls þess fólks sem að því stendur er frábær og hún endurspeglast í stuðningi þjóðarinnar við liðið. Allt er þetta hreint magnað.
Eflaust er hægt að segja margt. En kannski er best við hæfi að segja; takk fyrir. Þetta var ómetanlegt.