Svindlað með velvilja stjórnvalda

Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Varma, verður gestur í Þjóðbraut í kvöld. Páll bendir á að neytendur sé blekktir, þeir geti ekki vitað hvort vara sem þeir kaupa hér á landi sé íslensk eða ekki.

„Að okkar mati er ekki réttmætt gagnvart neytendum að fyrirtæki komist upp með að láta líta út fyrir með merkingum á vörum sem framleiddar eru erlendis úr erlendum hráefnum að þær séu framleiddar hér á landi,“ segir Páll. „Engar kvaðir eru hér á landi um uppruna eða innihaldsmerkingar á innfluttum ullar- og skinnavörum.“

Páll segir stjórnvöld láta viðgangast að unnt er að blekkja neytendur.

Nánar í Þjóðbraut í kvöld.