Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson setur út á viðtal sem Vísir birtist við Kristrúnu Heimisdóttur, sem var aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar á árum áður. Í viðtalinu var rætt við hana um formannsslaginn í Sjálfstæðisflokknum og sagði hún að kjör Guðlaugs Þórs gæti veikt ríkisstjórnarsamstarfið.
„En af þessu furðulega spjalli við Samfylkingarkonuna Kristúnu Heimis, sem virðist vita allt um innanhúsmál í ríkisstjórninni, er ekki annað að ráða en hinir stjórnmálaflokkarnir óski sér þess heitast að Bjarni haldi áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins. - Það er ekki víst að þessi söluræða Kristrúnar fyrir Bjarna klikki.“ skrifar Sveinn Andri á Facebook.
Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson tekur undir gagnrýni Sveins og segir: „Skrýtnasta pólitíska viðtal í langan tíma. Ég vænti þess að Vísir taki á morgun viðtal við mig um málið.“
Þá biður Sveinn hann Illuga um að útskýra fyrir sér hvernig stæði á því að Vísir „fer hamförum í þessum formannsslag í Valhöll og tekur slaginn fyrir Bjarna? Ég er eitt spurningamerki.“
Og Illugi svaraði: „Kemur þér virkilega á óvart að valdaþræðir ýmsir liggi frá Valhöll hingað og þangað um samfélag vort?“
Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson, sem starfar hjá Vísi, leggur síðan orð í belg og sakar mennina tvo um dylgjur. „Vá. Ég veit ekki í hvaða game-i þið eruð, Sveinn og Illugi? Sjálfsagt sitthvoru en þetta er ljótur leikur. Ætlið þið að standa við þessar dylgjur að Vísir sé með fréttaflutningi sínum að ganga erinda fjármálaráðherra? Í alvöru talað? Það er sturtað skít yfir þessa stétt sem ég tilheyri dagana langa en yfirleitt er það nú frá hópi ómarktækra gapuxa sem ég hafði hingað til ekki talið ykkur tvo tilheyra. Sá hópur fagnar án vafa þessum óvænta liðsauka.“ segir hann.
Þá svarar Sveinn Andri með því að minnast á aðra frétt sem birtist á vef Vísis, en í henni var því haldið fram að Guðlaugur hefði boðið Bjarna að gefa sér fjármálaráðuneytið gegn því að hann myndi hætta við framboð.
Síðan hefur Guðlaugur vísað því á bug og segir Sveinn að um „fullkomlega tilhæfulausa“ frétt hafi verið að ræða. Þá finnst honum sérstakt að fréttin hafi verið birt án þess að bera fréttina undir Guðlaug. Ekki nóg með það, heldur segir hann að sagan sé í raun öfugsnúinn.
„Fjölmiðill setur einfaldlega ekki svona „frétt" í loftið án þess að bera undir hinn aðilann í þessu tveggja manna tali. Það sem ég hef heyrt er að þessu hafi einmitt verið þveröfugt farið; Bjarni hafi boðið Guðlaugi embætti fjármálaráðherra, gegn því að hann hætti við framboð sitt.“
Jakob svarar því með því að segjast ekki þekkja vel til þess hvenrig umrædd frétt var unninn, en líklega hafi þeir sem skrifuðu hana talið sig vera með öruggar heimildir.
„Ég veit í sjálfu sér ekkert um þessa tilteknu frétt. Innherji er sjálfstætt fyrirbæri innan Sýnar. Ég efast ekki um að þeir sem skrifuðu hana telja sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir henni. Guðlaugur Þór hefur markvisst ekki látið ná í sig í viku. Og það getur ekki verið þannig að menn geti drepið fréttir með því að láta ekki ná í sig. Þeir Bjarni og Guðlaugur verða spurðir út í þetta á morgun.“ segir Jakob Bjarnar og bætir við:
„Ég ætla ekki að fara að þrasa við þig um blaðamennsku frekar; í fjórða gír í kosningaham, en að draga fram eina frétt sem þér finnst óþægileg fyrir þinn mann og slá því fram að heil fréttastofa gangi erinda einhverra manna og afla undir fölsku flaggi hlutlægrar blaðamennsku, sem er auðvitað svívirðilegur atvinnurógur, er ekki boðlegt. Herra lögmaður.“