Störukeppni stóru strákanna

Verður kosið í haust einsog Sigurður Ingi vill og Bjarni vill, eða verður kosið í vor einsog Sigmundur Davíð vill? Þeir eru í störukeppni. Hver vinnur? Sigurður Ingi og Bjarni eða Sigmundur Davíð? Um  það er spurt.

Sigmundur Davíð hefur sagst ætla að beita sér gegn haustkosningum:

„Á hvaða hátt sem ég get, ekki aðeins út á við heldur einnig inn á við. Stjórnmálaflokkur þarf á því að halda að flokksmenn séu með í slagnum. Ég mun beita mér fyrir því. Hvað ríkisstjórnina varðar mun ég hafa aðkomu að því hvernig þetta gengur fyrir sig.“

Hinir tveir, forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann, eru annarrar skoðunar, enda lofuðu þeir kosningunum í haust.

Við sem fáum engu um þetta breytt bíðum og sjáum hvort liðið sigrar, haustkosningarsinnar innan stjórnarflokkanna eða vorkosningarsinnar innan sama hóps.