Stöndum þétt saman, snúum bökum saman

Íslenskir karlmenn standa saman, þétt saman. Þeir styðja hver annan til forystu um allt samfélagið. Meðvitað eða ekki raða þeir sér á sviðið. Halda konum frá. Samfélagið samþykkir.

Myndin sem ég setti saman segir nokkuð mikið. Samkeppniseftirlitið boðar til fundar um alvarleg mál. Einungis karlar tóku til máls. Þjóðhagsráðið, ráð hinnar miklu alvöru, er ekki fyrir konur. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga er dauðans alvara. Í pallborði er ekkert rúm fyrir konur. Nei, karlar snúa bökum saman.

Já þeir gera það og oft með fullum stuðningi kvenna. Bæjarstjórar sjö stærstu sveitarfélaga landsins eru karlar. Ekkert síður þar sem konur leiða þá flokka sem mynda meirihluta.

Konur skrá sig úr stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar þar sem konur þar fá ekki sömu tækifæri og sama vegsauka og karlar.

Hvers vegna er ekki hægt að vinna á launamuni kynjanna? Vegna þess að íslenskir karlmenn eru alls engar gungur, íslenskum karlmönnum vefst ekki tunga um tönn.

Á sama tíma eru fjölmiðlar gagnrýndir fyrir að fjalla meira um karla en konur. Getur það verið?

-sme