Stofustrákar í stjórnmálum

Ég hef verið á sjó í vondu veðri. Ég hef þurft að óttast. Ég hef upplifað sorgir þegar sjómenn hafa ekki náð í land. Hægt og bítandi hefur okkur Íslendingum tekist að fækka alvarlegum sjóslysum mikið. Landhelgisgæslan skiptir þar miklu máli. Ekki síst þyrlurnar.

Fjárlagafrumvarp var lagt fram í gær. Fjármálaráðherrann segir það samrýmast mjög hans vilja.  „Svipaða sögu er að segja af þyrlum Gæslunnar, en leitar- og björgunarþjónusta er ekki að fullu trygg fyrir utan 20 sjómílur frá strönd, sjö til átta mánuði ársins, vegna fjárskorts.“ Þetta er úr frétt Morgunblaðsins í dag um fjárlagafrumvarpið.

Komu bara stofustrákar að gerð frumvarpsins. Er skjólsamt í Garðabæ?

Lesum Moggann: „Fjárframlög til Landhelgisgæslu Íslands (LHG) á næsta ári verða svipuð og í ár, eða um 3,8 milljarðar króna samkvæmt því fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram á Alþingi í gær. Fram kemur í frumvarpinu að framlögin séu svipuð í ár og verið hafi 2009 á verðlagi þessa árs. Þau eru hins vegar sögð vera 15% lægri í ár en árið 2007. „Miðað við óbreyttar fjárveitingar að raungildi á árinu 2017 er krefjandi verkefni fyrir Landhelgisgæsluna að standa undir sínum helstu lögbundnu skyldum og því þarf að fækka um eina varðskipsáhöfn á næsta ári auk þess sem draga þarf úr annarri starfsemi,“ segir í frumvarpinu.“

Þá kemur þar einnig fram að við núverandi ástand getur það tekið varðskip Gæslunnar allt að 48 klukkustundir að komast á vettvang slysa eða óhappa innan efnahagslögsögunnar.

Fjölga þurfi skipum og áhöfnum til þess að stytta viðbragðstíma Gæslunnar niður í 24 klukkustundir. Samkvæmt frumvarpinu eru einungis tvær varðskipsáhafnir og eru varðskipin Týr og Þór gerð út til skiptis, hvort um helming ársins.

Varðskipið Ægir er hins vegar ekki haffært, en til að svo megi verða þurfa að lágmarki 80 milljónir króna að renna til standsetningar skipsins.

Eigum við að taka upp sama system í annarri neyðarþjónustu? Auðvitað ekki.