Ungt fólk hefur verið spurt hvort það hyggist eiga heima áfram þar sem nú er verið að reisa stórt iðjuver og virkja í kappi við allt og allt. Og svarið var; nei.
Nordregio kannaði hug ungs fólks í Þingeyjarsýslum til að komast að hvort unga fólkið sjái sig til framtíðar eiga áfram heima þar, einkum og sér í lagi með tilliti til iðnaðaruppbyggingarinnnar á Bakka við Húsavík. Unga fólkið sagði nei.
Nú eru mikil áform um byggingar á íbúðum fyrir komandi starfsmenn á Bakka og eins til að sinna öðrum störfum sem verða til. Það verða mörg störf til vegna iðjuversins. Um það er ekki nokkur vafi. Hins vegar bendir margt til að erlendir verkamenn, einkum frá fátækari löndu, flytji til Húsavíkur en vaxandi kynslóð þar flytji á brott. Það segir reynslan annarsstaðar frá og það segir hugur unga fólksins heima fyrir.
Nordregio kannaði hug unga fólksins og Anna Karlsdóttir félagsfræðingur stýrði könnuninni. Í niðurstöðum hennar kemur fram að mikið ósamræmi sé á milli áherslu stjórnvalda í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni og þankagangs ungs fólks.
Unga fólkið vill menntast og þá menntun vilja þau sækja annars staðar, þrátt fyrir miklar framfari í hvers kyns fjarnámi á landinu. Ungt fólk sæki sér einna helst innblásturs til fjölmiða og samfélagsmiðla, þar sem það verður fyrir beinum áhrifum af hnattvæðingunni, fremur en til heimahaganna.
Aukin og fyrirhuguð umsvif á norðurslóðum, svo sem olíuvinnsla á Drekasvæðinu, sem hefur heillað margan ráðamanninn á síðustu árum, hefur að sama skapi engin áhrif á framtíðaráform ungs fólks.
Það sem meira er, í langfæstum tilvikum höfðu þátttakendur gefið þessum verkefnum gaum. Það væri einna helsta ferðaþjónustan í nærumhverfinu sem gæti sannfært það um að verða eftir.
Anna Karlsdóttir, sagði í viðtali sem ég tók við hana, að niðurstöðurnar gefi til kynna að eflaust sé ráðlegast fyrir íslensk stjórnvöld að leggja áherslu á fjölbreytileika í atvinnuuppbyggingu í stað þess að setja öll eggin í sömu körfuna. Körfu sem jafnvel gæti ekki verið til staðar að tveimur áratugum liðnum.
Sigurjón M. Egilsson.