Stefán hjólar í Katrínu: „Annað hvort sturluð frekja eða verulegt skilningsleysi“

Katrín Atladóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tjáði sig um að áfengisfrumvarp Hildar Sverrisdóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokksins, í gærkvöldi. Það stefnir allt í að málið fari ekki í gegn, líkt og svipuð frumvörp frá fyrri árum. Það þótti Katrínu ekki gott, en í færslu sem hún birti á Twitter kenndi hún Vinstri grænum og Framsóknarflokknum um þetta.

„Er þetta grín? Ekkert nýtt með VG en átti ekki Framsókn að vera orðin nútímalegri?“ spurði Katrín.

Maður nokkur svaraði henni fljótlega og benti á að forseti Alþingis væri nú í Sjálfstæðisflokknum. Katrín svaraði um hæl: „Það að kenna XD um að þetta mál fari ekki í gegn er eins og að kenna Viðreisn um að Laugavegur sé ekki lengsta göngugata í Evrópu.“

Í kjölfarið skarst Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi í leikinn og sparaði ekki stóru orðin.

Hann sagði að málið væri komið mjög stutt í nefnd, auk þess sem einungis ein umræða um það hefði farið fram.  Hann sagði því að það væri engan veginn valkostur að að afgreiða málið strax.

Stefán sagði að málflutningur Katrínar gæfi annað hvort til kynna skilningsleysi á störfum þingsins, eða hreinlega „sturlaða frekju“.

„Þetta er mál sem var ekki gengið til 2. umræðu og hefur verið rætt í klukkutíma í nefnd. Þingið klárast í vikunni. Að tala eins og það sé yfirhöfuð valkostur að afgreiða málið á þessu þingi er annað hvort sturluð frekja eða merki um verulegt skilningsleysi á störfum þingsins.“