Jóhann Páll Jóhannson, þingmaður Samfylkingarinnar, spári því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn muni bregðast við Íslandsbankaskýrlsunni, sem nú er yfirvofandi.
„Nú fær Sjálfstæðisflokkurinn eina tvær vikur til að undirbúa PR-herferð um skýrslu Ríkisendurskoðunar. Almenningur og Alþingi verða að bíða.“ skrifar Jóhann á Facebook-síðu sinni.
„Spádómsgáfan segir mér að túlkun stjórnarliða á niðurstöðunum – sú saga sem landsmönnum verður sögð næstu vikurnar – verði eitthvað á þessa leið,“ skrifar hann og opinberar spádóminn, það er að segja telur hann að Sjálfstæðisflokkurinn muni afsaka sig svona:
„Lagaumgjörðin um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum er ekki nægilega skýr og ábyrgðarskipting óljós. Að því leyti sem frávik urðu frá eðlilegri framkvæmd við söluna á Íslandsbanka liggur ábyrgðin einkum hjá Bankasýslu ríkisins en ekki hjá ráðherra.“
Færsla Jóhann endar síðan þa þessum orðum. „Þið lásuð það fyrst hér.“