Telja má víst að þingkonurnar Þórunn Egilsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir ætli, með framboði sínu til fyrsta sætis á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, að slá skjaldborg um Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Framsóknarflokksins.
Áður hefur Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður, og trúlega helsti andstæðingur formannsins innan flokksins, tilkynnt framboð til fyrsta sætis. Höskuldur Þór freistar þess að fella formanninn úr fyrsta sæti, sætinu sem Sigmundur Davíð vann af Höskuldi Þór fyrir síðustu kosningar.
Þar sem allir þingmennirnir fjórir gefa kost á sér til fyrsta sætis er víst að atkvæði munu dreifast nokkuð. Víst má telja að Sigmundur Davíð sigli nokkuð lygnan sjó þar sem þeir flokksmenn sem vilja hann ekki áfram í fyrsta sæti, kjósi eitt hinna þriggja. Því eru nánast engir möguleikar á að Höskuldur Þór felli eigin formann.