Skattaskjól, þrælar, kosningar og réttarríki

Gestalisti Þjóðbrautar á sunnudagsmorguninn liggur fyrir. Sjaldan, jafnvel aldrei, hafa komið saman eins fínir gestir og verða á sunnudaginn, allt í beinni útsendingu.

Fyrstu gestirnir verða Herdís Kjerúlf Þorgeirsdóttir lögfræðingur og Bolli Héðinsson hagfræðingur. Þau munu ræða margt. Til dæmis stöðu heilbrigðismála, reglur um réttarríki auk annars.

Á eftir þeim koma stjórnmálaleiðtogar; Birgitta Jónsdóttir og Benedikt Jóhannesson. Komandi þingkosningar og hið pólitíska landslag verður krufið með þeim tveimur.

Þá verður komið að Aðalsteini Kjartanssyni blaðamanni hjá Reykjavik Media og Drífu Snædal framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins. Skattakjól, ungra sem eldri, þrælahald á Íslandi, skipting gæðanna og fleira sem þarf að ræða.

Og að lokum Karl Th. Birgisson blaðamaður sem var  senda frá sér bókina; Alltaf einn á vaktinni, sem er um kosningabaráttu Ólafs Ragnars Grímssonar árið 2012. Stórskemmtileg bók.

Væri ég hlutlaus, segði ég: Vá. Þvílíkt mannval. En þar sem ég er ekki hlutlaus, segi ég bara; horfið eða hlustið. Þátturinn verður í beinni útsendingu sjónvarps Hringbrautar og í útvarpi Hringbrautar, fm 89,1.

-sme