Skálað í boði isavia

Fyrir langalöngu sat ég í réttarsal og fylgdist með þekktu sakamáli. Stjórnendum fyrirtækis var gefið að sök að hafa mútað mönnum til að fá þá til viðskipta. Þeir voru sakaðir um að hafa borgað ferðir og flottheit fyrir mann og annan. Enginn þeirra sem þáði hafði kvittað fyrir og óreiða var á pappírum vegna þess alls. „Ef maður býður manni á barinn lætur maður hann ekki kvitta fyrir glasinu,“ sagði einn þeirra sem sat á sakamannabekknum.

Þetta rifjast upp þegar lesin er frétt á heimasíðu RÚV. Hún byrjar svona:

„Ekki eru til samantekin gögn um utanlandsferðir einstakra starfsmanna eða stjórnarmanna Isavia hjá félaginu Þetta kemur fram í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem birtur var í kvöld. Þá eru heldur ekki til fyrirliggjandi gögn um utanlandsferðir æðstu stjórnenda né greiðslur af viðskiptakorti fyrir slíkar ferðir.“

Hvurslags rugl er þetta?

Óskað var eftir afriti allra skjala sem varða greiðslur af viðskiptakorti Isavia fyrir utanlandsferðir stjórnar og framkvæmdstjórnar Isavia, þar með talinna endurrita af viðskiptayfirliti Icelandair á árunum 2010-2014 og upplýsingar um ferðir stjórnenda Isavia á sama tímabili, t.d. hverjir hafi farið í tilteknar ferðir sem taldar væru fram á viðskiptayfirliti Icelandair og snerti stjórn eða stjórnendur Isavia, hvenær þær ferðir sem viðskiptayfirlitið nær til voru farnar, hvert, hver áfangastaðurinn var og hvenær viðkomandi sneri aftur til landsins.

Isavaia sem er opinbert hlutafélag sem hefur fengið þá stöðu að vera til fyrir stjórnendur fyrirtækisins, og jafnvel enga aðra, og þeir fara sínu fram. Skreppa hvert sem er í heiminum og brúka jafnvel greiðslukort fyrirtækisins án þess að hafa nokkurn tíma komið til hugar að færa þetta allt til bókar.

Hvurslags rugl er þetta? Ætlar enginn að gera neitt, eða er fréttin uppspuni? Verður ekki að koma böndum á Isavia.