Sá möguleiki er að Sjálfstæðisflokkurinn komist ekki í ríkisstjórn. Þó flokkurinn beriu höfuð og herðar yfir alla aðra flokka, hvað stærð varðar. Hann er samt ekki fyrsti kostur hjá nógu mörgum hinna flokkanna. Hann er í hættu með að enda í skugga.
Möguleg ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartar framtíðar myndi hafa minnsta mögulegan meirihluta. Til þessa hefur það ekki þótt góð staða, staða sem gefur hverjum og einum stjórnarþingmanni möguleika á að krefjast, heimta, leika afgerandi einleik í stöðu veikrar ríkisstjornar.
Nú virðast meiri möguleikar á að ríkisstjórn verði mynduð frá miðju og yfir til vinstri. Framsókn færi varla hlutverk í ríkisstjórn meðan innanmeinin naga flokkinn og allt hans starf.
Þegar Óttarr Proppé mælir með að Benedikt Jóhannesson fái fyrtur tækifæri til að mynda ríkisstjórn er ljóst að símtöl Óttars og Bjarna Benediktssonar hafa ekki fengið Óttarr til að ganga í lið með Bjarna, ekki strax hið minnsta.
Flestir flokkarnir hafa nánast sagst ekki vilja vinna með Sjálfstæðisflokki. Bjarni þarf, þrátt fyrir að hafa landað ágætum kosningasigri, að bjóða vel. Að öðrum kosti fer hann og flokkurinn í einangrun í einhvern tíma.