Simmi leggur til mjög stóra breytingu: „Það er ekki jafnræði“

Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, sem er betur þekktur sem Simmi Vill, leggur til róttæka breytingu í launamálum fólks á Íslandi. Simmi segist leggja þetta til í nafni jafnræðis. Hann vill afnema álagsgreiðslur sem fólk fær um kvöld og um helgar, því honum finnst þær óréttlátar gagnvart fjölskyldufólki. Þetta kemur fram í pistli hans á Vísi.

„Hlutastarfsmenn í mörgum fyrirtækjum eru oft að fá hærri laun fyrir færri tíma vegna 33% álags á kvöldin og 45% álags um helgar. Það er óréttlátt gagnvart þeim launamönnum sem geta ekki unnið um kvöld og helgar. Fjölskyldufólk er í miklum meirihluta launamanna sem eiga erfiðara með að vinna kvöld og helgarvinnu. Þeim er mismunað vegna þessa kerfis. Álagið leggst ofan á dagvinnutaxtann sem viðkomandi er með.“ segir Sigmar.

Þá segir hann að þeir sem stundi aukavinnu með námi eigi aðveldara með að fá jafnmikið borgað og þeir sem eru í hundrað prósent dagvinnu. „Það þarf ekki stærðfræðing til að reikna út að starfsmenn í aukavinnu t.d. með námi þurfa færri tíma til að ná sömu launum og launamenn sem vinna 100% dagvinnu. Það er ekki jafnræði.“

Sigmar heldur því fram að það hafi færst í aukanna að fólk vilji vinna kvöld og helgarvinnu í stað dagvinnu, og spyr: „Því ættu þeir launamenn að fá hærri laun en þeir sem vinna á daginn fyrir sama starf? Það er ekki jafnræði, sérstaklega ef það er val viðkomandi launamanns að vinna á kvöldin og um helgar.“

Þá leggur Simmi fram hugmyndina sína á skýrari hátt:

„Með því að horfa á vaktir, óháð tíma, óháð virkum dögum eða helgum þá væri hægt að leggja áherslu á dagvinnutaxta og um leið einfalda alla umræðu í kjarasamningum. Hægt væri að nálgast málið með því að segja að fyrstu 8 tímar á vakt, óháð tíma eru á dagvinnutaxta, sem væri því kallaður einfaldlega: GRUNNTAXTI. Undanskilið væri helgidagar (rauðir dagar) og næturvinna.“

Hann segir að þessi hugmynd gæti jafnað stöðu launamanna innan sama fyrirtækis, og þá myndi hún sporna gegn verðhækkunum á vörum og þjónustu fyrir viðskiptavini og gera Ísland samkeppnishæfara í ferðaþjónustu.

Í lok pistilsins sendir Sigmar eigendum fyrirtækja skilaboð, þar sem hann hvetur fyrirtæki til að skrá sig í Atvinnufjelagið, en hann er sjálfur stjórnarmaður í félaginu. Skilaboð hans eru þessi:

„Til eigenda fyrirtækja: Öll fyrirtæki sem eru ekki skráð í neitt félag ber, samkvæmt lögum, að fylgja þeim kjarasamningum sem Samtök Atvinnulífsins gera þó að fyrirtækið þitt sé ekki skráð í neitt félag. Það er því mikilvægt að skrá fyrirtækið í Atvinnufjelagið strax til að ná fram breytingum,“