Sigmundur verður að halda áfram

Eftir lestur viðtals Morgunblaðsins við Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og eins eftir samtal við einn af þingmönnum flokksins er ég sannfærður um eitt. Þar á bæ er fólk sannfært um að Panama-skjölin, birting þeirra og fréttaflutningurinn í framhaldinu hafi verið úthugsuð árás á Sigmund Davíð og Framsóknarflokkinn. Í þeim hópi er ekki efast. Ekki eitt augnablik.

Eiginkonan segir það nánast í viðtalinu. „Miðað við það hversu ljótur leikur þetta var og hvernig þetta teygði sig út fyrir landsteinana þá kæmi mér ekki á óvart þó einhverjir úr hópi kröfuhafanna hafi ýtt undir þessa umfjöllun og séð sér verulegan hag í því að velta forsætisráðherra landsins úr sessi.“

Þingmaður Framsóknarflokksins sagði í samtali að ef upphaflega hafi verið talað um að 600 Íslendingar komi fyrir í Panamaskjölunum, hvað skýrir, sagði hann, að þegar þrjátíu nöfn hafa verið birt og þar af 25 sem tengjast Framsóknarflokki er leiknum hætt? Hvers vegna? Hann svaraði sjálfur; til að koma höggi á Sigmund Davíð og Framsóknarflokkinn vegna starfa hans í málum kröfuhafanna.

Aðalsteinn Kjartansson, einn þeirra blaðamanna sem vann hvað mest úr Panamaskjölunum segir þetta ekki rétt. Hann segir að búið sé að birta fleiri en 45 nöfn með sérstökum fréttum og birta gagnagrunn þar sem er að finna hundruð nafna.

Anna Sigurlaug segist hafa svarað mörgum spurningum, sem henni voru sendar áður en Kastljósþátturinn umtalaði var sendur út. Ekkert hafi verið gert með svörin.

Anna Sigurlaug segir um eiginmann sinn: „Sigmundur hefur brennandi áhuga á pólitíkinni og þeim málefnum sem þar eru til úrlausnar. Eins og margir vita þá er hann mjög ákafur þegar hann er kominn af stað í ákveðin mál. Hann hefur sterkar skoðanir á því hvað gera þurfi og ég finn á honum að hann hefur áhyggjur af því að stór og mikilvæg mál verði ekki leidd til lykta nema rétt verði haldið á þeim. Hann telur mjög mikilvægt að koma á og tryggja stöðugleika hér á landi og að íslenskt samfélag geti að fullu tekið þátt í alþjóðahagkerfinu. Í mínum huga verður hann að halda baráttunni áfram og ég er sannfærð um að margir eru mér sammála um það.“

Anna Sigurlaug segir einnig í Morgunblaðsviðtalinu: „Mér þótti mjög ósanngjarnt að maðurinn sem hafði staðið í lappirnar fyrir hönd þjóðarinnar í gríðarlega stórum málum og erfiðum og náð árangri sem vakið hefur athygli um allan heim, var látinn gjalda fyrir umfjöllun sem ekki stóðst nokkra skoðun. Það er ekki hægt að lýsa þeirri tilfinningu þegar dregin er upp sú mynd af okkur í heimspressunni eins og að við höfum tekið þátt í umfangsmiklum skattalagabrotum. Þá situr maður eftir og það skipti engu máli hvað maður sagði eða reyndi að útskýra. Það hafði enginn áhuga á því að heyra sannleikann í málinu og það er hræðileg tilfinning.“