Sigmundur davíð herðir tökin

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson herðir tökin á Framsóknarflokknum. Gefur ekkert eftir og sýnir Sigurði Inga Jóhannssyni í tvo heimana. Ómögulegt er að ætla að friður sé að verða innan Framsóknarflokksins.

Sigmundur Davíð er í einstöku viðtali í Fréttablaðinu í dag þar sem hann kennir öðrum en sér um hvernig komið er fyrir flokknum.

Að hans mati hefði flokknum gengið betur undir hans forystu.  „Ég var búinn að leggja drög að því hvernig með öflugri kosningabaráttu hefðum við getað hækkað fylgið um kannski fjögur prósentustig  og svo kannski tvö í viðbót í kosningunum sjálfum. Við hefðum þá getað gert ráð fyrir 18 til 19 prósenta fylgi.“

„Það er ekki hægt að gera annað en að viðurkenna að þetta er ekki góð niðurstaða. En þetta kemur kannski ekki að öllu leyti á óvart eftir það sem á undan er gengið,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

 „Að vera með flokkinn í innbyrðis átökum vikum og mánuðum saman, frekar en að einbeita sér að því að undirbúa kosningar og fara samhent í þær með þennan árangur sem við vorum búin að ná, leiddi til þessarar niðurstöðu. Þeir sem höfðu áhyggjur af Píratastjórn fóru yfir á Sjálfstæðisflokkinn sem auðnaðist það að standa saman.“