Siðeysið finnur sér alltaf farveg

Ég held að ég hafi tekið síðasta viðtalið sem tekið var við Dr. Jónas Haralz. Það var skömmu eftir hrun. Jónas sagði þá að svo virtist sem að engu skipti hversu margar reglur og mörg lög væru sett; siðleysið finndi sér alltaf farveg.

Hvers vegna skrifa ég þetta? Jú, vegna starfshátta smálánafyrirtækjanna. Stjórnendur þeirra virðast endalaust finna leiðir til að hafa sem mest af viðksiptavinum sínum. Í þættinu Þjóðbraut, sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, segir Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu frá nýföllnum dómi yfir tveimur smálánafyrirtækjum.

Það fólk sem á viðskipti við smálánafyrirtækin er í neyð. Enginn tekur lán með allt að þrjú þúsund prósent vöxtum ótilneyddur. Svo virðist að engu skipti hvað löggjafinn reynir til að stemma stigum við rekstri fyrirtækjanna. Stjórnendur þeirra finna alltaf nýjar leiðir. Ævintýralegar.

Sigurjón M. Egilsson.