Þingmenn Sjálfstæðisflokksin segjast vita að Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, hafi verið hótað færi hún í stjórnarmyndarviðræður. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Bjarna Benediktssyni ætlar ekki að takast að mynda ríkisstjórn. Ekki í þessari umferð hið minnsta. Við lestur Morgunblaðsins opnast augu þeirra sem lesa að það hafi komið þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í opna skjöldu hversu afdráttarlaust afsvar Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, gaf Bjarna um að hefja viðræður við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk um stjórnarmyndun.
Sennilega hefðu flestir aðrir Íslendingar, aðrir en þingmenn Sjálfstæðisflokksins, orðið yfir sig hissa hefðu Vinstri græn stokkið upp í til núverandi ríkisstjórnar. Framlengt líf hennar fyrir eitthvert smáræði, svo sem þrjá ráðherrastóla.
Undrun þingmanna Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt því sem Mogginn segir, byggist helst á því að þeir segjast „...hafa upplýsingar um að það væri ákveðinn stuðningur, jafnvel þó nokkur, í þingflokki VG við slíkar stjórnarmyndunarviðræður og sögðust þess vegna ekki skilja hið afdráttarlausa afsvar Katrínar.“
Þingmenn Sjálfstæðisflokks segjast vita að Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, hafi verið hótað og það hafi ráðið úrslitum um að hún hafi ekki gefið kost á að ræða við núverandi ríkisstjórn um aðkomu Vinstri grænna að henni.
Morgunblaðið skrifar: „Þar munu þingmenn Sjálfstæðisflokksins ekki hafa tekið með í reikninginn ungliðahreyfingar VG og grasrót flokksins og þær hótanir sem formanni flokksins hafa borist úr þeirra ranni, m.a. hótanir um afsagnir úr trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, ef VG ákvæði að hefja stjórnarmyndunarviðræður við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk. Fullyrt er að slíkar hótanir og þrýstingur ungliðanna hafi haft mikil áhrif á afstöðu Katrínar. Það er því ljóst að í þessari hringferð um stjórnarmyndunarborðið verða engar viðræður milli Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknarflokks, hvað svo sem verða kann síðar meir.“