Davíð Oddsson mætti í viðtal á Morgunvakt Óðins Jónssonar, á rás eitt, þar sem hann varði drjúgum tíma í að tala um hversu ómögulegur maður Guðni Th. Jóhannesson er að hans mati.
Meðan ég hlustaði, var að fara í bað til að hafa mig til fyrir vinnuna, hafði Davíð mest talað um Guðna og eins um sjálfan sig. Hann flokkar sig og Guðna frá öðrum frambjóðendum; hann sagði: „Þegar annar aðalframbjóðandinn,“ og átti þar við Guðna.
Þá er spurt, hvað nefnast þá aðrir frambjóðendur? Davíð telur, samkvæmt hans eigin orðum, sig og Guðna vera aðalframbjóðendur. Eru til næstaðalframbjóðendur og svo koll af kolli.
Sigurjón M. Egilsson.