Samfylkingin mælist stærsti stjórnmálaflokkur landsins í Þjóðarpúlsi Gallup eins og undanfarna tvo mánuði og forskotið á Sjálfstæðisflokkinn hefur aukist. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.
Samfylkingin mælist með 25,1 prósent, rösklega prósentustigi meira en í febrúar, en Sjálfstæðisflokkurinn er með 22,3 prósent, eilítið minna en síðast. Nú munar 2,8 prósentustigum milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins og bilið hefur aukist.
Framsóknarflokkurinn mælist þriðji stærstur með 9,9 prósent, sem er um prósentustigi minna en í febrúar. Píratar tapa mestu milli kannana, 1,7 prósentustigi og eru með 9,4 prósent.
Viðreisn bætir við sig fylgi, fær 9,1 prósent í könnuninni, tæpu einu og hálfu prósentustigi meira en síðast, og Vinstri græn eru með 7,1 prósent, aðeins meira en í febrúar.
Miðflokkurinn bætir við sig einu prósentustigi frá síðustu könnun og mælist með 6,3 prósent á meðan Flokkur fólksins og Sósíalistar eru með svipað fylgi og síðast, 5,6 og 5,1 prósent.
Ríkisstjórnin kolfallin
Ríkisstjórnarflokkarnir þrír mælast með 39 prósenta fylgi, samanborið við 54 prósent í kosningunum í september 2021.
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 41 prósent og dregst saman um eitt prósentustig milli mánaða. Fylgi við stjórnina hefur minnkað í hverjum mánuði frá því í desember þegar það mældist 47 prósent.
Könnunin stóð yfir 1. mars til 2. apríl. Heildarúrtak var 11.228 manns og svarhlutfall var um 50 prósent. Tæp 10 prósent svarenda sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa ef gengið yrði til kosninga nú.