Helstu fréttir nýjustu skoðanakönnunarinnar er ekki ótrúlegur árangur Pírata, eða að VG auki fylgi sitt, eða Björt framtíð nái þingmönnum og ekki heldur bág staða Framsóknarflokks eða sögulega lágt fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Helsta fréttin er hvernig komið er fyrir Samfylkingunni. Fátt, og jafnvel ekkert, bendir til að frambjóðendur flokksins geti snúið þróuninni við. Sumir þeirra virðast skriðnir í skjól. Láta lítið, jafnvel ekkert, fyrir sér fara. Virðast hafa gefist upp.
Fylgi þeirra í nýrri skoðanakönnun 365 er afar bág. Flokkurinn fengi rúm sjö prósent og nálgast fimm prósenta markið. Hætta er á að flokkurinn tapi svo miklu fylgi að hann hverfi af þingi. Það yrðu stórtíðindi ef þau sem á halda klúðri flokki úr þrjátíuu prósenta fylgi og út af þingi á aðeins hálfum öðrum áratug.
Í könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið mældist fylgi Samfylkingarinnar aðeins eitt prósent hjá yngstu kjósendunum, það er fólki átján til 29 ára. Engum getur dulist að Samfylkingin höfðar ekki til þessa fólks, ekki til ungs fólks.
Getur það haft eitthvað með aldur forystfólksins að gera. Elstur leiðtoganna er Össur Skarphéðinsson, en hann er 63 ára, Guðjón Brjánsson er 61 árs, Oddný formaður er 59 ára, Logi varaformaður er 53 ára og yngst eru Árni Páll Árnason, en hann er fimmtugur, og Sigríður Ingibjörg er 49 ára. Meðalaldur forystufólksins er 56 ár.
Er lífsmöguleiki fyrir Samfylkinguna í ljós alls, að elstu oddvitarnir standi upp og gefi þeim sem yngri eru tækifæri til að bjarga flokknum? Veit ekki, en staða hans myndi varla versna.