„...sá ég að þetta var búið.“

Sem ritstjóri á fjölmiðli verð ég að gæta hlutleysis. Og ekki bara það. Mér þykir gaman að því hlutverki. Stundum koma upp atvik þar sem ég spyr mig, má ég segja það?

En segja hvað? Jú, núna eru það forsetakosningarnar. Innst inni dylst engum að úrslitin eru ráðin. Guðni Th. Jóhannesson verður næsti forseti Íslands.

Fyrir langalöngu kom QPR, enska fótboltaliðið, til Íslands og spilaði meðal annars gegn úrvalsliði Reykjavíkur. Gestirnir voru langtum betri og unnu níu eitt. Eftir leikinn sátu reykvísku leikmennirnir hnípnir í búningsklefanum. Það ríkti þögn eftir þetta stóra tap. Svo fór að einn þeirra sagði: „Þegar þeir skoruðu sjöunda markið sá ég að þetta var búið.“

Þegar ég las skoðanakönnun Fréttablaðsins rifjaðist þessa saga upp fyrir mér.

Það er hlutverk fjölmiðla að gæta jafnfræðis. Að vera með í lýðræðislegri umræðu. Okkur sem berum ábyrgð á fjölmiðlum er nu vandi á höndum.

Munurinn milli Guðna og hinna allra er það mikill að hann verður ekki brúaður.

Þá segi ég það aftur, ég held að úrslitin séu ráðin. Og þeim verður trauðla breytt á þeim dögum sem eru fram að kosningum.

Sigurjón M. Egilsson.