Rothögg i fyrstu lotu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vann mikilvægan og öruggan sigur um helgina. Höskuldur Þór Þórhallsson liggur eftir óvígur til frekari baráttu innan flokksins. Allt eins var búist við að kjósa þyrfti milli þeirra tveggja í annarri umferð. Svo fór ekki. Öruggur sigur formannsins varð ljós strax. Höskuldur, helsti andstæðingur Sigmundar Davíðs innan flokksins og jafnvel víðar, gekk ósæll af velli. Fór heim.

Þeir hafa lengi deilt. Tókust á um formannsembættið 2009 og eftir að Sigmundur Davíð skoraði Höskuld Þór á hólm 2013, með framboði sínu í Norðausturkjördæmi hefur nánast verið alkul milli þeirra.

Nánast má segja að Sigmundur Davíð hafi stuðning þingflokks Framsóknarflokksins, með örfáum undantekningum, og hann hefur tryggan stuðning í eigin kjördæmi.

Áskoranir til varaformannsins og forsætisráðherrans, Sigurður Inga Jóhanssonar, um formannsframboð eru orðnar nokkuð margar og flestar, sem hafa verið birtar opinberlega, koma frá svæðafélögum Framsóknarflokksins. Þá hafa tveir fyrrverandi formenn flokksins, menn sem eiga takmarkaða samleið, sagt Sigmund Davíð eiga að stíga til hliðar, það eru þeir Guðni Ágústsson og Jón Sigurðsson.

Því virðist sem innan þingflokksins sé mikill stuðningur við Sigmund Davíð en víða annars staðar virðist meiri stuðningur við Sigurð Inga.

Þrátt fyrir rothöggið í Mývatnssveit er baráttu Sigmundar Davíð hvergi nærri lokið.

Hvort Höskuldur Þór haldi áfram er ekki vitað. Fordæmi eru fyrir að Framsóknarmenn hafi boðið fram tvo lista í kjördæmi. B—lista og BB-lista. Hvort svo verði nú er óvitað.

-sme