Rikki g gekk örna sinna í ræktinni: „ég bara áttaði mig ekki á þessu“

Útvarpsmaðurinn Rikki G. lenti í óskemmtilegu atviki í miðri lyftingaræfingu í Sporthúsinu í gær. Rikki er í heilsuátaki og hefur hann undanfarið innbyrt mikið af Túrmerik sem talið er vera hreinsandi fyrir líkamann. Í Brennslunni ræddu þau Kjartan Atli, Rikki og Kristín Rut atvikið þegar Rikki bókstaflega kúkaði óvart í sig í ræktinni.

„Nú ætlum við að ræða aðeins heilsu Rikka. Hvernig er heilsan Rikki minn?,” spurði Kjartan.

„Hún er fín, bara mjög góð,” svaraði Rikki.

Kjartan Atli spyr Rikka hvort hann væri búin að jafna sig andlega eftir áfallið í Sporthúsinu.

„Neeii, já ég held að enginn hafi hlegið jafn mikið af þessu og ég,” svaraði Rikki og hélt áfram: „Ég var fljótur að jafna mig og bara áfram gakk og passa sig þegar maður er að far á svona hreinsandi að maður þarf aðeins að hérna. Ég er nefnilega ekkert vanur að fara á svona eins og fylgir heilsuátakinu. Þetta túrmerik er algjör snilld, þetta hreinsar þig að innan.“

Kristín Rut tók undir orð Rikka og sagði það hárrétt.

„Fyrir þá sem ekki vita og eru að hlusta núna að þá lenti Rikki í óskemmtilegum atburði sem að hann sagði frá hérna í gær að fyrrabragði þar sem hann gekk örna sinna í lyftingarsalnum óvart. Tók svo vel á því að það kom eitthvað pínu út um exit gluggann,“ útskýrði Kjartan.

„Já þetta var þannig að ég var í miðri pressu og ég bara áttaði mig ekki á þessu,“ svaraði Rikki þá sem virðist ekki kippa sér mikið upp við atvikið og umræðuna.

Þremenningarnir ræddu svo nánar um heilsuátak Rikka sem gekk að hans sögn mjög vel.