Forráðafólk Samfylkingarinnar setti upp mikið reikniverk til að notkunar við röðun á framboðslista flokksins síns. Gæta átti að jafnfræði milli kynja og eins milli kynslóða. Svo var lagt af stað.
Fátt af nýju fólki bauð sig fram og ekki útlit fyrir mikla endurnýjun á listum þessa fallandi flokks. Og þó, Margrét Tryggvadóttir steig á sviðið. Margrét var áður þingmaður Borgarhreyfingarinnar og Hreyfingarinnar. Margrét er mælsk, skemmtileg í umræðu og talaði strax af afli fyrir málstað Samfylkingarinnar. Flokkurinn fékk nýja rödd.
Margrét bauð sig fram í fyrsta til annars sætis í Kraganum, búandi í Kópavogi. Margrét lenti í þriðja sæti, en vegna reikniverksins var hún dæmd í fimmta sætið. Hár aldur Margrét, hún er 44 ára, varð henni að falli í reikniverki Samfylkingarinnar. Já, reglur er reglur og það vissu allir þáttakendur fyrirfram. Búið spil hjá Margéti.
Svo var kosið í öðrum kjördæmum. Enn var reikniverkið í gangi. Þegar úrslitin lágu fyrir var ljóst að reikniverkið og leikreglurnar myndu hafa mikil áhrif á innmúraða frambjóðendur. Þessu varð að breyta.
Og það var bara gert. Leiknum var breytt eftir á og reikniverkið bara látið gilda um eina manneskju. Margréti Tryggvadóttur. Samfylkingin sér um sig.
Guðmundur Árni Stefánsson, einn af þeim stóð að stofnun Samfylkingarinnar og fyrrum þingmaður flokksins, sagðist í Þjóðbraut á Hringbraut, viss um að ábyrgðarfólk flokksins hljóti að hafa áhyggjur af stöðu flokksins. Getur það verið? Því þá að auka hann með því að breyta leikreglum prófkjara eftir á?
Reikniverk Samfylkingarinnar náði þegar upp var staðið til eins frambjóðanda. 44 ára gamallar konu í Kópavogi.