Púðurskot í forsetabaráttu

Ef þversumman er margfeldi kennitölu allra starfsmanna 365 deilt með meðaltali húsnúmera við Skaftahlíð í Reykjavík er 2,5, eiga fimm frambjóðendur af níu að vera með í lokaþætti 365 fyrir forsetakosningarnar. Þannig minnir mig að heimatilbúin reikniformúla fréttastofunnar við Skaftahlíð hafi hljómað.

Því voru fimm frambjóðendur í þætti gærkvöldsins. Ekki níu. Allt var einsog áður. Sturla heldur enn fram sinni bókstafstrú. Hann lærði íslensku í barnaskóla og les stjórnarskrána. Þannig er það. Hann skar sig úr hópnum.

36 tímar voru þá þar til kjörstaðir verða opnaðir.

Davíð teygði sig í síðasta púðurskotið og skaut að Guðna. Fallbyssa Davíðs hefur sýnt sig að vera gömul og lek. Mest af púrðinu fer sannanlega á þann sem kveikir á þræðinum. Ekki þann sem skotinu er beint að.

Eftir skothríð kosningabaráttunnar hefur byssan ekki sannað sig. Frá því að hæst bar hjá Davíð má segja að hann hafi tapað um fjörutíu prósentum.

Guðni hefur vissulega tapað fylgi. En hann hafði efni á því.

 Sigurjón M. Egilsson.