Píratar ráða kosningabaráttunni

Hvað sem hverjum og einum kann að þykja er ljóst að Píratar, með stjórnarmyndunarhugmyndum sínum, hafa tekið frumkvæði í kosningabaráttunni. Þeir mælast stærsti flokkur þjóðarinnar. Þetta kemur fram í nýrrri könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið, og blaðið birtir í dag.

Það stór sér á fylgi Bjartrar framtíðar og Viðreisnar, flokkanna sem tóku hvað verst í hugmyndir Pírata. Báðir þeir flokkar, sem og Samfylking, mælast nú nánast sem smáflokkar. Björt framtíð og Samfylking eru í mikilli hættu um að ná fá ekki kjörna þingmenn.

Frá því að fylgi við Pírata tók að aukast hefur Sjálfstæðisflokkurinn, aðallega með framgöngu Morgunblaðsins, reynt að verjast þeim breytingum. Það hefur ekki tekist. Alls ekki. Þar sigraði framtíðin fortíðina. Í dag mælast Píratar stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.

Að Pírötum frátöldum eru Vinstri græn eini flokkurinn sem er í stuði. Við þeim blasir stórsigur. Framsókn er ekki vænn kostur þessa dagana. Það er ekki traustvekjandi þegar formennirnir tveir, núverandi og fyrrverandi, talast ekki við og öllum er ljóst að krónísk fýla hefur heltekið Framsóknarflokkinn.

Kjósendur treysta Pírötum. Þrátt fyrir að frambjóðendur þeirra hafa ekki lokið námi frá stjórnmálaskólum hinna hefðbundnu stjórnmálaflokka. Kannski einmitt þess vegna.

Víst er að Píratar eru í forystu í kosningabaráttunni. Þeir ráða för.