Óskiljanleg viðhorf í vestmannaeyjum

Enn vekur Páley Bergþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, þjóðarathygli fyrir þöggunaráráttu sína. Páley lögreglustjóri vill sem fyrr að ekki verði sagðar fréttir af nauðgunum, sem kunna að verða framdar, á Þjóðhátíð þeirra Eyjamanna.

„Síðar þegar það er tímabært og skaðar ekki rannsóknarhagsmuni er eðlilegt að upplýsa um fjölda tilkynntra mála en eigi að vera mark takandi á slíkum upplýsingum þarf tíminn að fá að líða,“ stendur í svari Páleyjar við fyrirspurn Fréttablaðsins. Hún tekur aftur á móti ekki fram hversu margir dagar þurfi að líða. Þetta kemur fram á Vísi.

Páley vill að fleiri gangi í lið með sér. Á Vísi má einnig lesa þetta: „Páley hafði samband við Neyðarmóttöku Landspítalans á dögunum og bað um að sama verklag yrði viðhaft þar. Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri Neyðarmóttökunnar, segir stefnu spítalans vera þá að svara fyrirspurnum fjölmiðla og upplýsa um fjölda mála, skiptir þá ekki hvers eðlis málið er. Því verði ekki orðið við beiðni lögreglustjórans.“

Það er hreint út sagt með ólíkindum að lögreglustjóri vilji þagga niður glæpi og enn furðulegra er að hún óskar þess að aðrir, langt utan hennar lögsögu, geri það líka.

Auðvitað varð enginn við beiðni lögreglsutjórans. Nauðgun er alvarlegur glæpur og það ber að segja fréttir af hrottalegum glææpum. Rök lögreglustjórans eru einskis virði.

„Ég hef ekki breytt skoðun minni frá því í fyrra og segi enn þá að þetta verklag verndi ekki þolendur kynferðisofbeldis. Þessi framgangur er á skjön við það sem tíðkast í öðrum málum. Ég veit að flestir fagaðilar eru sammála um að það sé rétt að veita þessar upplýsingar,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta á Vísi.

Sem betur fer eru engar undirtektir með hinum harða lögreglustjóra í Vestmannaeyjum.