Okkar eigið nautahlaup

„Fjórir liggja á sjúkrahúsi eftir að naut stönguðu þá í frægu nautahlaupi á götum Pamplona á Spáni í dag. Einn þeirra er töluvert meiddur eftir að hafa fengið nautshorn í lærið.“

Þetta er dæmigerð frétt af hinu árlega nautahlaupi á götum Pamplona á Spáni. Fréttir þaðan minna mikið á fréttirnar af samkomum um verslunarmannahelgar á Íslandi. Í báðum tilfellum hópast fólk saman í nafni skemmtunar og svo er bara að bíða og sjá hversu margir þátttakenda sleppa óskaddaðir frá herlegheitunum.

Spánverjar telja slasaða og meidda samstundis og fjalla um niðurstöðuna. Uppgjörið hjá okkur fer fram þegar laganna vörðum, eða verði, þóknast. Samt vitum við nú þegar af nokkrum þungum hnefahöggum og öðru alvarlegra.

Nú er að bíða allra uppgjöra og þá er unnt að sjá hversu margt fólk hefur beðið skaða af hinu íslenska nautahlaupi.