Óbreyttur; bjarni benediktsson

Eðlilega er Bjarna Benediktssyni ekki skemmt. Fari sem horfir bíða hans verulegar breytingar. Hann verður þá ekki sá valdsmaður sem hann er nú og hefur verið frá því að hann myndaði ríkisstjórn með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, vorið 2013. Bjarni sér fram á setu í stjórnarandstöðu þar sem hann getur helst beitt sér með ástundun málþófs og leiðinda. Það hafa ekki allir þolað þær breytingar sem hann sér nú fram á.

„Mér líst afleitlega á þá hugmynd. Það sagði ég við Katrínu. Í fyrsta lagi vegna þess að það eru svo margir kostir í stöðunni á þriggja eða eftir atvikum fjögurra flokka stjórn, að mér finnst fimm flokka stjórn vera hugmynd sem gengur alls ekki upp,“ sagði Bjarni við Morgunblaðið í gær, þegar hann kom af fundi með Katrínu Jakobsdóttur.

Hvort flokkarnir verða fjórir eða fimm, getur ekki skipt mestu máli. Bjarni hefur vissulega spilað vel í stöðu fjármálaráðherra. Allsstaðar, allavega víðast hvar, þar sem mælistiku verður á komið sést að Bjarna hefur tekist vel. Skuldir ríkisins hafa lækkað, tekjur hafa aukist, afgangur frá rekstri ríkisins sýnir fínustu niðurstöðu, verðbólga aldrei verið lægri  og svo má áfram telja.

Svo er annað. Ekki er allt sem sýnist. Hvert, já hvert, sem litið er, er allt í kaldakoli. Menntakerfið á í stórkostlegum vanda, heilbrigðiskerfið er ömurlega illa statt, samgöngumannvirkin, mörg hver, eru hættuleg vegna þess að þeim er ekki viðhaldið. Hér eru einungis taldir upp málaflokkar. Í hverjum og einum þeirra er hægt að telja upp, og það eflaust endalaust, það sem er að vegna fjársveltis.

Opinberar byggingar skemmast vegna þess að þær fá ekki viðhald. Allt þetta gerist á sama tíma og allir mælar sýna Bjarna hafa staðið sig svo vel.

Þjóðin á eftir að verja verulegum fjárhæðum til að lagfæra allt sem hefur verið látið drabbast niður. Því er fjárhagsleg staða samfélagsins hvergi eins góð og mælarnir sýna.

Já, allir mælar, eða flestir hið minnsta, segja Bjarna hafa staðið sig vel. Hann sér nú fram á þá hættu að hann missi völdin og verði óbreyttur þingmaður. Bjarni hefur fengið flest sem hann hefur viljað. Því er von að honum sé brugðið. Að ólund hafi sest fyrir í honum.