Ný öld framsóknar byrjar í ströggli

Framsóknarflokkurinn er eitt hundrað ára og er því að hefja göngu sína á nýrri öld. Staðan í upphafi er ekki glæsileg. Flokkurinn á í vanda. Gunnar Bragi Sveinsson, einn af ráðherrum flokksins, neitaði á Þjóðbraut að innan flokks væru vandræði, þegar hann var inntur eftir að áberandi þingmenn flokksins hafa kosið að láta af þingmennsku. Hann sagði það eðlilegt.

Hvað sem Gunnar Braga þykir, er víst að okkur sem stöndum utan flokksins þykir allt annað.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður flokksins. Hann stendur veikt. Öll vitum við hvers vegna. Áberandi Framsóknarmenn hafa tekið þá ákvörðun að verja formanninn. Allavega enn sem komið er. Þegar svo er, er víst að fyrsta mál Framsóknarflokks í komandi kosningum verður vörn fyrir formanninn. Þeir munu eiga erfitt með að fá fólk til að hlusta á annað.

Sigurður Ingi Jóhannsson er varaformaður flokksins. Hann er jú forsætisráðherra og hann veit og þjóðin veit, að hann er í afleysingum. Hans framtíð verður varla í stjórnarráðinu. Það kemur helst í hans verk að verja búvörusamninginn sem hann ber ábyrgð á, ásamt Bjarna Ben. Fyrirtæki bændanna, MS, gerði Sigurði Inga erfitt fyrir og með framgöngu sinni jók það ósætti um samninginn. Málfutningur Sigurður Inga í kosningabaráttunni verður, að óbreyttu, vörn fyrir búvörusamninginn.

Eygló Harðardóttir er ritari Framsóknarflokksins. Eygló hefur tekið sér langan tíma í húsnæðismálin. Hún á eftir að verja þau í kosningabaráttunni. Helst er sótt að henni úr Sjálfstæðisflokki. Þar á bæ er séreignastefnan grunnstefið. Húsnæðismálin eru það margbreytilegur málaflokkur að engu skiptir hvað gert er. Alltaf verða deiilumál og alltaf hefði mátt gera betur. Eygló er samt í mun betri stöðu en formaðurinn og varaformaðurinn.

Gunnar Bragi Sveinsson er einn af ráðherrum flokksins. Hann geislar af sjálfsöryggi. Eftir að hann var tekinn úr utanríkisráðuneytinu hefur hann þurft að fara í moksturinn. Hann er dugnaðarforkur og hefur vaðið í varnir fyrir búvörusamninginn. Smábátasjómenn vilja að hann segi af sér og ef ekki, að honum verði þá sparkað. Hann flutti 200 tonna strandveiðikvóta úr kjördæmi Sigurðar Inga og yfir í sitt kjördæmi. Hann þarf að verjast ásökunum um kjördæmapot.

Vigdís Hauksdóttir, Sigrún Magnúsdóttir og Frosti Sigurjónsson, öll þingmenn flokksins í Reykjavík hafa ákveðið að hætta. Það breytir miklu fyrir Framsókn. Sigrún hættir sökum aldurs, Frosta skortir áhuga en Vigdís er allt annað mál. Best að láta kenningu flakka. Vigdísi á að hafa verið gerð grein fyrir því að Sigmundur Davíð muni leiða lista í öðru Reykjavíkrkjördæminu og Lilja Dögg Alfreðsdóttir í hinu. Þá hafi hún ákveðið að fara. Enda verið oft áður hafnað af flokknum.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir er óskrifað blað. Flokksmenn, margir hið minnsta, horfa til hennar sem komandi leiðtoga flokksins, hið minnsta sem einn af þeim. Lilja kom óvænt í stjórnmálin. Er utanríkisráðherra og það er hennar að ákveða næstu skref í eigin lífi. Henni stendur til boða að vera áfram embættismaður eða fara í stjórnmálin. Hennar stutti ferill þar er sérstakur. Hún varð óvænt ráðherra utanþings og hefur sýnilega notið sín vel í embætti. Fæst bendir til að Framsókn verði í næstu ríkisstjórn. Vill Lilja verða stjórnarandstöðuþingmaður og stunda skipulagt málþóf? Sú er spurningin.

Willum Þór Þórsson, Elsa Lára Arnardóttir, Sillja Dögg Gunnarsdóttir og nokkrir aðrir þingmenn, sem settust á þing 2013, eiga eflaust eftir að berjast fyrir sínu. Allt bendir til að þingmönnum Framsóknar eigi eftir að fækka umstalsvert.

Framsóknarflokkurinn hefur mikið að segja. Flokkurinn hefur neitunarvald varðandi hauskosningar. Einsog ástatt er í flokknum er honum hollast að draga kosningar svo langt sem hann getur.

Kosningaloforð Framsóknar hafa ekki verið birt. Hver sem þau verða mun skuggi annarra mála hylja þau.

Bændaflokkur Íslands er ekki í stuði á aldarmælinu.